Kennari: Hafdís Sturlaugsdóttir hjá Náttúrustofu Vestfjarða
Verð kr: 7.900 -
Staður: Hólmavík eða Reykhólar, eftir því hvar þátttaka næst.
Námskeið hefst: 20/06/2011 - Umsóknarfrestur til: 21/06/2011
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Mánudaginn júní 2011, kl 17:00.
Á námskeiðinu verður þátttakendum kennt að þekkja plöntur sem nýttar eru sem tejurtir eða til lækninga. Farið verður yfir útlit plantna og síðan farið í vettvangsferð. Í vettvangsferðinni safna þátttakendur plöntum og læra um leið að þekkja þær og hvernig gott er að bera sig að við söfnunina. Þá verður farið yfir hvaða aðferðir eru bestar til að geyma plöntur og plöntuhluta, hvaða tæki er helst að nota og fleira því tengt.