|
||||
|
|
Námskeiðið er fjarkennt frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ).
Námskeiðið er ætlað fagfólki í félags-, mennta- og heilbrigðisstéttum. Markmið og tilgangur námskeiðsins er að kynna þátttakendum árangursríka aðferð og ýmsar leiðir sem geta nýst fólki við að ná markmiðum sínum í lífi og starfi.
Lausnamiðuð nálgun er áhrifamikil, gagnleg og margreynd aðferð til jákvæðra breytinga hjá einstaklingum, fjölskyldum, hópum, stofnunum og fyrirtækjum. Með þessari nálgun er lögð áhersla á að fólk einblíni ekki á vandamálin og orsök þeirra við úrlausn mála heldur sjái það sem er að virka. Sjónarhornið er lausnin (ekki vandamálið), framtíðin (ekki fortíðin) og hvað gengur vel (ekki illa) en það leiðir til jákvæðs og raunsæs árangurs. Með sjónarhornið á lausnir hafnar þessi hugmyndafræði hefðbundnum hugmyndum um að besta leiðin til árangurs sé að finna orsök vanda, með því að greina hann, tala um hann og álykta út frá honum.