Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Leiðarvísir að Sturlungu - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Einar Kárason, rithöfundur.
Verð kr: 13.400 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður
Námskeið hefst: 21/04/2009 - Umsóknarfrestur til: 21/04/2009
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath: Kennt þri. 21. og 28. apríl. og fim. 30. apríl kl. 20:15-22:00 (3 skipti). Mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Námskeið kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ)

Ætlað þeim sem langar að lesa Sturlungu en hafa aldrei getað brotist inn í hana. Vegna mikilla vinsælda er Einar Kárason nú kominn aftur til að segja sögur upp úr Sturlungu og kynna þannig helstu atburði og lykilpersónur sögunnar um leið og hann dregur upp leiðarvísi inn í söguna.

Leiðin inn í Sturlungu er torsóttari og villugjarnari en inn í flestar okkar helstu fornsögur. En þeim sem þangað komast opnast stórbrotinn og óviðjafnanlegur heimur með mögnuðum sögupersónum og dramatískum atburðum. Á þremur kvöldum endursegir Einar Kárason með eigin orðum helstu viðburði og leikendur á sviði 13. aldar, með aðaláherslu á Örlygsstaðabardaga og löngum aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu. Gott tækifæri gefst til umræðna og leiðbeint verður inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is