Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Ljósmyndun

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Ágúst G. Atlason, áhugaljósmyndari
Verð kr: 26.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 17/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 15/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 24
Ath: Kennt tvær helgar: laugardag 17., sunnudag 18., laugardag 24. og sunnudag 25. október kl. 10:00-14:00

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu stillingar á myndavélum, mynduppbyggingu, stúdíólýsingu, myndatökur inni án flass og útimyndatökur og hvernig best er að stilla myndavél fyrir þær aðstæður. Farið verður yfir myndvinnslu með Lightroom myndvinnsluforritinu, helstu aðgerðir í sambandi við að merkja myndir og geyma á skynsamlegan máta og hvernig skal útsetja myndir fyrir prent og vef.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is