Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Lög og réttur fyrir 50 ára og eldri - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Sigríður Logadóttir, cand. jur., LL.M og MBA frá Háskóla Íslands.
Verð kr: 19.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 12/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 05/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Kennt mán. 12., 19. og 26. okt. kl. 16:15 - 19:15 (3 skipti)

Námskeið kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ).

Tilgangur námskeiðsins er almenn fræðsla um lög og rétt sem varða fólk á þessu aldursskeiði. Á námskeiðinu verður leitast við að fjalla fyrst og fremst um hagnýt atriði.

Í sífellt flóknara samfélagi er öllum nauðsynlegt að kunna nokkur skil á lögum og rétti. Þarfir fólks fyrir kunnáttu á réttarsviðinu er mismunandi eftir aldursskeiðum. Á þessu námskeiði er tekið mið af þörfum þeirra sem hafa náð þeim merka áfanga að vera komnir á miðjan aldur. Fólk á síðari hluta ævi sinnar stendur oft á tímamótum. Á þessu æviskeiði eru börnin flogin að heiman og tími komin til að minnka við sig húsnæði. Að hverju þarf að gæta varðandi fjármálin. Sumir vilja söðla um í starfi meðan aðrir vilja hætta að vinna og njóta lífeyrisréttinda sinna og sparnaðar. Sorgin getur knúið á, maki fellur frá eða leiðir skilja. Á að sitja í óskiptu búi eða skipta búi. Er þörf á að semja erfðaskrá eða endurnýja kaupmála. Á maður að stofna til óvígðrar sambúðar eða gifta sig. Hvernig er opinberri þjónustu háttað við eldri borgara, hvað ef heilsan bregst, hvaða réttinda nýtur maður þá í sambandi við heilbrigðisþjónustu, o.s.frv.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is