|
||||
|
|
Byrjað verður frá grunni, kennt að fitja upp og prjóna stroff eða perluprjón. Kennd verður úrtaka og að setja niður mynstur. Sýnt verður hvernig á að fella af, lykkja saman undir höndum og ýmislegt fleira sem nauðsynlegt er að kunna varðandi fallegan frágang á prjónaflík.
Þátttakendum stendur til boða að fá aðstoð við að velja lopa, liti og snið fyrir námskeiðið.