Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Markaðsmál og almannatengsl

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Gústaf Gústafsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða
Verð kr: 9.900 -
Staður: Hótel Ísafjörður
Námskeið hefst: 05/11/2011 - Umsóknarfrestur til: 04/11/2011
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath: Kennt laugard 5. nóv. kl. 10-15:30 eða þriðjud. 8. nóv. kl. 10-15:30. Vinsamlega tilgreinið daginn í athugasemdareit.

Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvarinnar og Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum. Markmiðið er að auka skilning á þeim leiðum sem best nýtast auk þess að fjalla um verkefni sem hafa náð framúrskarandi árangri hér á landi.

Á námskeiðinu er leitast við að svara eftirfarandi spurningum ásamt mörgum öðrum og að auki skoða
raunveruleg dæmi:

  • Hvað eru markaðsmál?
  • Hvernig er hægt að nýta almannatengsl til að ná árangri?
  • Hvað eru samhæfð markaðssamskipti?
  • Hvaða máli skiptir ímynd?
  • Hvaða áhrif hefur vörumerki?

Léttur hádegisverður og gagnamappa innifalin í verði.

Eftirfarandi dagsetningar eru í boði og er hvert námskeið 4,5 tímar (7 kennslustundir):

  • 5. nóvember, laugardagur kl. 10-15.30
  • 8. nóvember, þriðjudagur kl. 10-15.30

Vinsamlega tilgreinið hvor dagur hentar í athugasemdareit þegar skráð er á námskeiðið.

Nánari upplýsingar veitir Gústaf Gústafsson hjá Markaðsstofu í síma 662-4156 eða í gegnum tölvupóst á netfangið .

Vakin er athygli á því að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna námskeiða.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is