Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Meistaragreinar

Flokkur námskeiðs: Réttindanám
Kennari: Halldór Halldórsson, Heiðrún Tryggvadóttir og Ólafur Jens Sigurðsson.
Verð kr: 85.000 á þátttakanda -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12 á Ísafirði
Fjöldi kennslustunda: 135

Fræðslumiðstöð Vestfjarða mun í vetur kenna námskeið sem hægt verður að meta inn í nám til iðnmeistaraprófs (meistaraskóla). Kennd verða námskeið sem samsvara áföngum sem allir meistaranemar verða að taka, nema Tölvunotkun (TÖL 103). Kennslan verður í samstarfi við Meistaraskóla Tækniskólans, sem ber á faglega ábyrgð á náminu.

Á haustönn 2010 verða kenndar 135 kennslustundir í eftirtöldum námsgreinum:
Málnotkun (ÍSL 242) - 30 kst.
Viðskiptastærðfræði (STÆ 243) - 45 kst.
Bókhald og skjalavarsla (MBS 101 - 15 kst.
Reikningsskil (MRS 103) - 45 kst.

Ekki er þörf á að taka allt námið, því unnt er að taka einstök námskeið.
Sé allt námið á haustönn 2010 tekið kostar það einungis 85 þúsund kr. á þátttakanda, sem er verulegur afsláttur af fullu verði einstakra námskeiða.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is