Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Melrakkinn sem auðlind

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Ester Rut Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Melrakkasetur Íslands
Verð kr: 2.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða (fjarkennt til Hólmavíkur, Patreksfjarða og á Reykhóla)
Námskeið hefst: 03/06/2009 - Umsóknarfrestur til: 03/06/2009
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Miðvikudagur 3. júní kl 18:00-20:20

Á námskeiðinu verður fjallað um melrakkann sem auðlind sem hægt er að virkja og nýta í sjálfbærri náttúrulífs-ferðamennsku (e. Sustainable wildlife-tourism) á Íslandi.
Um er að ræða tvær kennslustundir. Í þeirri fyrri verður fjallað um tegundina sem slíka, sérstöðu hennar og einkenni, líffræði og útbreiðslusögu. Seinni kennslustundin fjallar um hvar dýrin er helst að finna, vísbendingar um ferðir þeirra, hegðun og útlit, einkenni og „týpur“. Fjallað verður um hvernig ber að umgangast villta refi og hvað ber að varast. Að lokum verður farið yfir gildandi lög og reglur um villt dýr í náttúru Íslands.

Forsendur eru þær að undanfarin ár hefur verið boðið upp á sérstakar ferðir þar sem sýnd eru villt spendýr í Íslenskri náttúru. Lengst af hefur athyglin beinst að hvölum, til dæmis á Skjálfandaflóa í N-Þingeyjarsýslu en nýverið hafa bæst við selir í Hrútafirði, hreindýr á Héraði og refir á Hornströndum. Aukin ásókn ferðamanna í að upplifa villt dýralíf í náttúrulegu umhverfi hefur verið nokkuð til umræðu vegna þess að þar stangast á verndunarsjónarmið og hagnaðarvon. Vaxandi fjöldi ferðamanna gerir þá kröfu að slíkum ferðum fylgi vottun þess eðlis að ferðaþjónar stundi sjálfbæra og ábyrga ferðaþjónustu og að þess sé gætt að skaða ekki eða trufla um of það lífríki sem er til sýnis í ferðum á þeirra vegum.
Melrakkasetur Íslands er þátttakandi í evrópuverkefninu The Wild North sem hefur það m.a. að markmiði að þróa slíkt vottunarkerfi. Hluti verkefnisins felst í að stunda rannsóknir og vöktun á villtum dýrastofnum og áhrifum ferðamanna á þá. Ennfremur að veita fræðslu og upplýsingar til þeirra aðila sem stunda náttúrulífstengda ferðaþjónustu til að þeir geti sinnt sínum viðskiptavinum af þekkingu og ábyrgð.

Kennsla er í höndum Melrakkaseturs Íslands, Súðavík

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is