Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Menningararfurinn - Þjóðfræðistofa á Ströndum

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Kristinn Schram þjóðfræðingur
Verð kr: 1.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12 Ísafirði, Þekkingarsetrið Skor Patreksfirði, Þróunarsetrið á Hólmavík
Námskeið hefst: 17/02/2011 - Umsóknarfrestur til: 17/02/2011
Fjöldi kennslustunda: 2
Ath: Haldið fimmtudaginn 17. febrúar kl. 17:00

Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og hugsanlega fleiri aðila, mun í vetur að gangast fyrir röð fyrirlestra undir heitinu Menningararfurinn.  Fyrirlestrarnir eru sendur út í gegnum fjarfundabúnað og er hægt að sækja þá þar sem Fræðslumiðstöðin hefur aðgang að slíkum búnaði.

Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum í fornleifafræði og öðrum tengdum greinum.

Áætlað er að fyrirlestrarnir verði þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Næsti fyrirlestur verður fimmtudaginn 17. febrúar nk. Þá mun Kristinn Schram þjóðfræðingur og forstöðumaður Þjóðfræðistofu á Ströndum fjalla um starfsemi og verkefni Þjóðfræðistofu. Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og reikna má með að hann taki um eina klukkustund. Fyrirlesturinn verður í gegnum fjarfundabúnað frá Hólmavík og sendur til Ísafjarðar og Patreksfjarðar.

Aðgangseyrir er 1.000 kr.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is