Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið í gerð styrkumsókna

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Jón Páll Hreinsson - M.Sc. í alþjóða viðskiptum og ráðgjafi hjá Fossahlíð ehf.
Verð kr: 5.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Námskeið hefst: 19/01/2012 - Umsóknarfrestur til: 19/01/2012
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Haldið fimmtudaginn 19. janúar kl. 18 - 22.

Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað öllum sem ganga með nýsköpunarhugmynd í maganum og vilja brjótast út úr núverandi ástandi og skapa eitthvað nýtt.

Á námskeiðinu er farið markvisst yfir þá alla þætti sem góð styrkumsókn þarf að innihalda. Notast er við viðurkennda aðferðafræði um uppbyggingu styrkumsókna sem nýtist þátttakendum við að skrifa allar gerðir af umsóknum í litla og stóra styrksjóði. Skoðaðar eru umsóknir fyrir helstu sjóði sem í boði eru á Íslandi og hvaða áherslur eru mikilvægar hjá hverjum sjóði. Jafnframt er farið í gegnum helstu atriði í verkefna- og tímastjórnun styrkverkefna og hvernig árangursríkum styrkverkefnum er stjórnað, þannig að hámarkslíkur séu á árangri.

Námskeiðið er opið öllum og þarf ekki sérstaka menntun til að geta tekið þátt. Jafnframt eru allir hvattir til þátttöku, sama hversu lítil eða stór þeirra hugmynd er.

Hvað er innifalið?
Námskeiðið tekur eina kvöldstund eru fjórar kennslustundir. Inní fyrirlestrana eru fléttaðar reynslusögur af árangursríkum styrkverkefnum og hvernig frumkvöðlar og fyrirtæki á Ísafirði og á Íslandi hafa notað styrkjaumhverfið til að nálgast fjármagn til að veita nýsköpunarhugmyndum brautargengi.

Áhersluatriði á námskeiðinu
- Hvað er góð nýsköpunarhugmynd og hvað þarf hún að innihalda
- Hvernig er framtíðarsýn uppbyggð
- Trúverðuleiki umsækjanda
- Hvernig á að skilgreina verðmæti nýsköpunarhugmynda
- Hvaða sjóðir eru í boði á Íslandi og erlendis

Að auki munu fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands koma á námskeiðið og fjalla um þeirra aðferðafræði við að meta umsóknir í þeirra sjóði.

Fjölmörg stéttarfélög niðurgreiða þátttöku í námskeiðum og er þátttakendum bent á að hafa samband við sitt félag um frekari upplýsingar.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is