Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið í sálrænum stuðningi

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Auður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Harpa Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafjörður.
Námskeið hefst: 24/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 23/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt laugardaginn 24. október kl. 10.00-14.00.

Námskeið haldið af Rauða krossi Íslands í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem
lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju. Meðal viðfangsefna eru mismunandi tegundir áfalla, áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn, sálræn skyndihjálp, stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks og sorg og sorgarferli.

Námskeiðið er í boði Rauða kross Íslands og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is