Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náttúran - Fjölbreytni smádýralífs - fjarkennt um Vestfirði

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Þorleifur Eiríksson, dýrafræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða.
Verð kr: 1.000 -
Staður: Ísafjörður og aðrir staðir á Vestfjörðum þar sem fjarfundabúnaður er.
Námskeið hefst: 17/11/2011 - Umsóknarfrestur til: 17/11/2011
Fjöldi kennslustunda: 2
Ath: Fyrirlesturinn verður haldinn 17. nóvember kl. 17:00-18:00.

Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða sendir út í fjarfundabúnaði þannig að þeir sem hafa aðgang að slíkum búnaði geta nýtt sér þá.

Fyrirlestrarnir verða að jafnaði þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17:00 - 18:00.

Umfjöllunarefni dagsins er fjölbreytni smádýralífs - nánari lýsing verður kynnt síðar.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is