Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náttúran - Fuglarannsóknir á Vestfjörðum - fjarkennt um Vestfirði

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Böðvar Þórisson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða
Verð kr: 1.000 -
Staður: Ísafjörður og aðrir staðir á Vestfjörðum þar sem fjarfundabúnaður er.
Námskeið hefst: 23/02/2012 - Umsóknarfrestur til: 23/02/2012
Fjöldi kennslustunda: 2
Ath: Fyrirlesturinn verður haldinn 23. febrúar kl. 17:00-18:00.

Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða sendir út í fjarfundabúnaði þannig að þeir sem hafa aðgang að slíkum búnaði geta nýtt sér þá.

Fyrirlestrarnir verða að jafnaði þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17:00 - 18:00.

Umfjöllunarefni dagsins eru fuglarannsóknir á Vestfjörðum - nánari lýsing verður kynnt síðar.

Ath. upphaflega var fyrirlesturinn auglýstur fimmtudaginn 16. febrúar en frestast um viku, til fimmtudagsins 23. febrúar af óviðráðanlegum orsökum.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is