Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náttúran - Þorskurinn og þjóðin - fjarkennt um Vestfirði

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, líffræðingur og forstöðumaður Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum
Verð kr: 1.000 -
Staður: Ísafjörður og aðrir staðir á Vestfjörðum þar sem fjarfundabúnaður er.
Námskeið hefst: 19/01/2012 - Umsóknarfrestur til: 19/01/2012
Fjöldi kennslustunda: 2
Ath: Fyrirlesturinn verður haldinn 19. janúar kl. 17:00-18:00.

Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða sendir út í fjarfundabúnaði þannig að þeir sem hafa aðgang að slíkum búnaði geta nýtt sér þá.

Fyrirlestrarnir verða að jafnaði þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17:00 - 18:00.

Umfjöllunarefni dagsins er þorskurinn og þjóðin.

Þorskveiðar hafa verið stundaðar sem atvinnuvegur á Íslandi frá upphafi landnáms, líkt og víðar á norðurslóðum. Afkoma manna á norður Atlantshafssvæðinu hefur oltið á þorski og maðurinn hefur haft gífurleg og mögulega óafturkræf áhrif á þorskstofninn. Umfangsmiklar veiðar hafa á mörgum stöðum valdið algjöru hruni veiðistofnsins. Þrátt fyrir að áhrif mannsins á þorskinn séu augljós og óumdeild þegar kemur að áhrifum veiða þá eru misjafnar túlkanir á því hvers eðlis áhrifin hafa verið t.d. hvort þau séu afturkræf og hvort að veiði hafi orsakað þróunarfræðilegar breytingar í samsetningu stofnsins. Önnur áhrif af mannavöldum hafa verið minna til umfjöllunar enda ekki jafn bein og sýnileg. Það er þó ljóst að framkvæmdir og nýting mannsins á mikilvægum búsvæðum þorsks t.d. uppeldisstöðvum þorskseiða sem eru á grunnsævi og oft nálægt byggð, getur haft umtalsverð áhrif. Þá hafa loftslagsbreytingar þegar valdið breytingum á þorskstofninum og hækkandi hitastig sjávar er líklegt til að hafa enn frekari áhrif á næstu áratugum. Í fyrirlestrinum verður stiklað á stóru um sögu þorskveiða á Íslandi en aðallega fjallað um niðurstöður nýlegra rannsókna á áhrifum mannsins á þorskstofninn auk þess sem lítilega verður kynnt nýhafið rannsóknarverkefni sem miðar að því að kanna tengsl sveiflna í þorskstofninum og búsetuþróunar í sjávarbyggðum.

Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir er líffræðingur að mennt. Hún lauk BSc gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og doktorgráðu frá University of St Andrews árið 2005. Að loknu námi hlaut hún rannsóknarstöðustyrk frá Rannsóknarráði Íslands til rannsókna við Líffræðistofnun Háskólans. Frá nóvember 2007 hefur hún starfað sem forstöðumaður og vísindamaður við Rannsóknasetur HÍ í Bolungarvík. Rannsóknir hennar hafa fyrst og fremst verið á sviði þróunar, vist- og atferlisfræði fiskistofna, með áherslu á verndun og nýtingu.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is