|
||||
|
|
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Kennsla er í formi fyrirlestra, umræðna, verkefna og æfinga.
Sjálfstraust er undirstaða margra færniþátta, svo sem því hvernig okkur vegnar í samskiptum við aðra, hvernig við setjum markmið, tökum ákvarðanir og vinnum undir álagi. Hvað einkennir einstaklinga með gott sjálfstraust? Hvernig tengist sjálfstraust uppeldi? Geta vinnustaðir byggt upp umhverfi þar sem alið er á góðu sjálfstrausti starfsmanna? Hvernig getum við byggt upp eigið sjálfstraust og annarra? Í raun má segja að öflugt sjálfstraust sé ákveðin forvörn þar sem sterkir einstaklingar eiga auðveldara en aðrir með að taka ákvarðanir, setja mörk og verjast óæskilegum áhrifum frá umhverfinu.
Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig og efla eigið sjálfstraust auk þess að hafa jákvæð áhrif á aðra.