Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Pílagrímaleiðin til Santiago de Compostella - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Jón Björnsson
Verð kr: 9.800 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 26/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 20/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt mán. 26. okt., mið. 28. okt. og mán. 2. nóv. kl. 20:15 - 22:15 (3x)

Námskeið í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun HÍ.

Leiðin frá Roncevalles við landamæri Frakklands til Santíagó er 738 km löng og er gengin á um 40 dögum. Undanfarin 25 ár hefur leið þessi notið sívaxandi vinsælda og tugþúsundir manna, alls staðar að úr heiminum, fara hana ár hvert. Margir fara af trúarástæðum, aðrir eru “menningarferðamenn” því vegurinn sjálfur á mikla og merkilega sögu og liggur um fjölmarga sögustaði og merkar menningarminjar. Á námskeiðinu mun Jón Björnsson fjalla um Jakobsveginn og söguna sem tengist þessari leið s.s. dýrlinga og helga dóma, pílagríma og pílagrímsferðir og trú og táknfræði miðaldakirkjunnar.

Á 9.öld var álitið að líkamsleifar Jakobs Zebedeussonar hefðu fundist þar sem nú er borgin Santiago de Compostela í Galiciu á NV-Spáni. Hann var gerður þjóðardýrlingur Spánar og naut mikillar hylli. Því var trúað að þessi dýrlingur hefði átt mikinn þátt í því að endurheimta Spán frá Márum. Frá 11. öld og fram yfir siðaskipti var borgin, sem heitir eftir honum, þriðji mikilvægasti áfangastaður kristinna pílagríma á eftir Jerúsalem og Róm. Á 12. öld var orðinn til vegur frá Pýreneafjöllum til Santíagó með brúuðum ám og sæluhúsum og gengur hann enn undir nafninu Camino de Santiago, Pílagrímaleiðin til Santíagó, en pílagrímar hvaðanæva að úr Evrópu hittast við upphaf þessa vegar.
Frá 1992 var vegurinn settur á skrá menningarminja undir vernd Evrópuráðsins.

Á námskeiðinu er fjallað um leiðina og söguna sem tengist henni og er öðrum þræði ætlað til að undirbúa fólk sem hyggst fara leiðina að hluta til eða alla.

Umfjöllunarefni námskeiðs eru:

  • Dýrlingar og helgir dómar
  • Heilagur Jakob; heimildir og helgisaga
  • Pílagrímar og pílagrímsferðir
  • Útlínur miðaldasögunnar og sögu Spánar
  • Trú og táknfræði miðaldakirkjunnar
  • Ferðir á miðöldum
  • Jakobsvegurinn - Leiðarlýsing og leiðbeiningar
  • •Jakobsvegurinn - Leiðarlýsing og myndir

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is