|
||||
|
|
Í tengslum við starf rannsóknarnefndar Alþingis var skipaður starfshópur sem hafði það hlutverk að meta hvort fall bankanna ætti sér orsakir í siðferði og starfsháttum. Á námskeiðinu verða kynntir helstu þættir skýrslunnar af tveimur skýrsluhöfundum þeim Salvöru Nordal og Vilhjálmi Árnasyni og verður sérstök áhersla lögð á það hvernig við sem einstaklingar og þjóð getum lært af liðnum atburðum.
Skýrsla starfshópsins er hluti af skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Í skýrslunni er fjallað um siðferði og starfshætti í viðskiptalífnu og stjórnkerfinu en einnig um samfélagslega þætti eins og hlutverk fjölmiðla og háskólaborgara. Í skýrslu starfshópsins er fjallað um starfshætti og ábyrgð einstaklinga en ekki síður samfélagslega þætti sem sköpuðu skilyrði fyrir þau vinnubrögð sem voru viðhöfð.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Siðfræðistofnun og er kennt í gegnum fjarfundabúnað.