Kennari: Angela Schamberger
Verð kr: 31.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafjörður
Fjöldi kennslustunda: 24
Ath: Kennt á miðvikudögum kl. 18:00-20:00 (8 skipti). Hefst þegar næg þátttaka fæst.
Námskeið fyrir þá sem lokið hafa byrjendanámskeiði í þýsku eða hafa einhvern grunn í málinu en ef til vill ekki notað það mikið. Upplagt fyrir fólk í ferðaþjónustu og aðra þá sem hafa samskipti við þýskumælandi fólk. Farið verður í þýska málfræði og orðaforða. Einnig fjallað um menningu og venjur í þýskumælandi löndum.