Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skartgripasmíði - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Anna Dóra Ágústsdóttir, smíðakennari.
Verð kr: 21.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Námskeið hefst: 15/10/2011 - Umsóknarfrestur til: 05/10/2011
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Kennt laugardagurinn 15. og sunnudagurinn 16. október 2011, kl. 10:00 - 14:00.

Kenndar verða aðferðir við smíði á skartgripum hvort sem er hringum, hálsfestum, eyrnalokkum, armböndum eða nælum.

Þátttakendur koma til með að smíða skartgripi eftir eigin hönnun og gott væri að hver og einn kæmi með hugmyndir/teikningar að skartgripum með sér. Einnig verða kenndar ísetningar á steinum.

Unnið verður með silfur og endurunnið silfur. Silfrið er ekki innifalið í verði námskeiðs, þátttakendur koma til með að geta keypt efnið sem unnið verður með og alla fylgihluti. Silfur verður selt á staðnum gegn vægu gjaldi en grammið kosta um 250 kr. og er um 6 gr notað í hring.  Ef þátttakendur hafa einhverja sérstaka steina sem þeir vilja að verði á skartgripum sínum, að koma þá með þá með sér.

Efniskostnaður er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldi.

Athugið að aðeins komast 10 þátttakendur á námskeiðið í einu. Námskeiðið er orðið fullt en tekið er við nöfnum á biðlista (eða mögulega annað námskeið) í síma 456 45025.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is