|
||||
|
|
Kenndar verða aðferðir við smíði á skartgripum hvort sem er hringum, hálsfestum, eyrnalokkum, armböndum eða nælum.
Þátttakendur koma til með að smíða einn skartgrip eftir eigin hönnun og gott væri að hver og einn kæmi með hugmyndir/teikningar að skartgrip með sér. Einnig verða kenndar ísetningar á steinum.
Unnið verður með silfur og endurunnið silfur. Silfrið er ekki innifalið í verði námskeiðs, þátttakendur koma til með að geta keypt efnið sem unnið verður með og alla fylgihluti. Silfur verður selt á staðnum gegn vægu gjaldi en grammið kosta um 250 kr. og er um 6 gr notað í hring. Ef þátttakendur hafa einhverja sérstaka steina sem þeir vilja að verði á skartgripum sínum, að koma þá með þá með sér.
Efniskostnaður er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldi.