Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Smáskipanám

Flokkur námskeiðs: Réttindanám
Kennari: Hjalti Már Hjaltason
Verð kr: 105.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 08/02/2011 - Umsóknarfrestur til: 07/02/2011
Fjöldi kennslustunda: 105
Ath: Kennt þriðjudags- og fimmtudagskvöld og hugsanlega á laugardögum. Hefst þriðjudaginn 8. febrúar kl. 18:00.

Sá sem lokið hefur námi þessu, sem er samkvæmt reglugerð nr. 175 frá 2008 um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem skipstjóri/stýrimaður á skipum styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum, eftir 12 mánaða siglingatíma (smáskipaskírteini).

Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt reglugerð: Siglingafræði og samlíkir, siglingareglur og vélfræði, siglinga- og fiskileitartæki, sjóhæfni, veðurfræði og öryggismál.

Þeir sem ljúka smáskipaprófi geta tekið verklegt próf og öðlast þar með einnig skemmtibátaréttindi á 24 metra skemmtibáta.

Námið er kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans.

Þátttakendur skulu útvega sér samsíðung, hringfara (sirkill) og reglustiku, almenn ritföng og glósubók. Önnur námsgögn eru innifalin í verðinu.

Þriðjudaginn 25. janúar verður haldinn kynningarfundur þar sem farið verður yfir fyrirkomulag námsins og endanlegum kennslutími ákveðinn.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is