Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stiklur - kennsla fullorðinna. Seinni hluti

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Sigrún Jóhannesdóttir, kennslufræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgata 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 28/04/2009 - Umsóknarfrestur til: 27/04/2009
Fjöldi kennslustunda: 14
Ath: Kennt þriðjudag 28. apríl og miðvikudag 29. apríl kl. 12:30-17:00. Námskeiðið er frítt.

Sjálfstætt framhald af Stiklunámskeiði sem haldið var í nóvember 2008. Nýir þátttakendur velkomnir.

Eins og áður skiptist námskeiðið í tvo hluta. Í fyrri hlutanum verður fjallað um fullorðna nemendur og forsendur þeirra, farið í einkenni fullorðinna nemenda, mismunandi námsnálgun og aðferðir. Seinni dag námskeiðsins verður fjallað um forrit fyrir glærugerð, hljóðglærugerð og hljóðritanir til að birta á Netinu og spila í tónhlöðum. Glærugerð verður æfð með hliðsjón af aðferðinni „fá orð og fínar myndir” og æfður frágangur þeirra á vefinn. Einnig verður æfð hljóðritun og frágangur hljóðskráa fyrir Netið og tónhlöður. Kynnt forrit fyrir myndskeiðavinnslu, hljóðvinnslu, glærugerð og framsetningu á vefsíðu.

Námskeiðið er ætlað breiðum hópi sem sinnir fullorðinsfræðslu svo sem kennurum og leiðbeinendum sem vinna við símenntunarstofnanir, háskólakennurum, þeim sem sinna almennri mannauðsstjórnun innan fyrirtækja og stofnana og öðrum sem vinna að almennri uppbyggingu og eflingu fullorðinna.

Mögulegt er að taka aðeins annan námshlutann en þá er mikilvægt að taka slíkt fram við skráningu.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is