Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stjörnuskoðun

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Jón Björnsson
Verð kr: 4.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 26/02/2009 - Umsóknarfrestur til: 26/02/2009
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt fimmtudag 26. febrúar kl. 20.00-22.00, stjörnuskoðun úti þegar veður leyfir.

Árið 2009 er alþjóðaár stjörnufræðinnar. Þá eru liðin 400 ár frá því að Galíleó beindi sjónauka sínum að stjörnum himingeimsins. Í tilefni þess bíður Fræðslumiðstöðin upp á námskeið í stjörnuskoðun.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri að þekkja það helsta sem sjá má í himingeimnum.

Námskeiðið er tvískipt, í fyrri hlutanum er farið yfir ýmis alheimsfyrirbæri - hvaða fyrirbæri sjást í geimnum, fjallað um stjörnumerki og stjörnuhimininn. Einnig farið stuttlega í notkun stjörnukorta og hvernig nota má tölvur og netið sem hjálpartæki við stjörnuskoðun. Seinni hlutinn er stjörnuskoðun úti þegar veður leyfir.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is