Kennari: Jón Páll Hreinsson framkvæmdastjóri og MSc í alþjóðaviðskiptum
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði - fjarkennt til Hólmavíkur
Námskeið hefst: 27/10/2008 - Umsóknarfrestur til: 27/10/2008
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt mánudag 27. október, miðvikudag 29. október og föstudag 31. október kl. 20.00 - 22.00
Námskeiðið er frítt.
Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur hæfari í að skrifa styrkumsóknir og auka þekkingu þeirra á þeim sjóðum sem hægt er að sækja styrki til. Farið verður í gegnum hvernig á að skrifa umsóknir og hvað einkennir góðar styrkumsóknir. Gerð er grein fyrir hvernig umsóknir eru metnar í meginþáttum af þeim sem lesa, meta og ákvarða hverjir hljóta styrki. Umsóknarferlinu og umsóknarvinnunni má skipta niður í hluta og verður fjallað um hvernig ná má sem bestum árangri í hverjum hluta. Þá verður fjallað um helstu sjóði sem í boði eru á Íslandi og erlendis (norrænir og evrópuverkefni) og mismunandi áherslur milli þeirra. Loks verður umfjöllun um áfangaskýrslur og lokaskýrslur.