|
||||
|
|
Námskeiðið er fjarkennt frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ). Námskeiðið er haldið í samstarfi við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri.
Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur mun ásamt gestakennurum veita nemendum innsýn í eina vinsælustu og dramatískustu sögu Gunnars Gunnarssonar: Svartfugl.
Svartfugl fjallar um morð sem áttu sér stað á bænum Sjöundá á Rauðasandi í byrjun 19. aldar. Fjallað verður um sögulegan bakgrunn sögunnar, tengsl hennar við persónulegt líf Gunnars og ólíkan skilning lesenda og fræðimanna á sögunni í gegnum tíðina. Í lok námskeiðs gefst áhugasömum nemendum kostur á að fara í sjálfstæða ferð á söguslóðir Svartfugls.