Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tínsla og meðhöndlun íslenskra lækningajurta - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Anna Rósa Róbertsdóttir, B.Sc., Dip.Phyt, MNIMH grasalæknir
Verð kr: 5.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 29/04/2010 - Umsóknarfrestur til: 29/04/2010
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Kennt fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:15 - 22:15

Á námskeiðinu fjallar Anna Rósa Róbertsdóttir, grasalæknir almennt um grasalækningar og íslenskar lækningajurtir með áherslu á tínslu og meðhöndlun jurtanna. Rætt verður um þann áhrifamátt sem talið er að algengar íslenskar lækningajurtir búi yfir, jurtir sem auðvelt er fyrir leikmenn að finna og tína. Megináhersla verður lögð á tínslu, þurrkun, vinnsluaðferðir og geymslu lækningajurta. Fjallað verður m.a. um vallhumal, ætihvönn, maríustakk, mjaðjurt, blóðberg, birki, túnfífil, klóelftingu, haugarfa og fjallagrös. Einnig verða gefin dæmi um einfaldar uppskriftir og skammtastærðir.

Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is