Kennari: María Ragnarsdóttir
Verð kr: 25.900 -
Staður: Patreksskóli
Fjöldi kennslustunda: 30
Ath: Kennslustími eftir samkomulagi, hefst þegar næg þátttaka hefur fengist
Námskeið fyrir þá sem komnir eru yfir 55 árin og hafa litla sem enga undirstöðu á tölvur. Yfirferðin er hæg og reglulega litið um öxl og upprifjunaræfingar gerðar. Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að nota tölvuna til að skrifa texta, setja hann snyrtilega upp og prenta. Fara á Netið og taka á móti pósti og senda póst. Leita eftir gagnlegum upplýsingum á Netinu.
Allir námsþættir eru kenndir frá grunni og vönduð námsgögn eru innifalin í verði námskeiðsins.