|
||||
|
|
Námskeið í TOK launakerfinu og TOK bókhaldskerfinu.
Með TOK launakerfinu einfaldar þú útreikning launa. Hægt er að nota launakerfið fyrir starfsmenn á tímakaupi og mánaðarlaunum sem og fyrir eigendur fyrirtækja sem greiða reiknað endurgjald.
TOK er algengasta bókhaldskerfið hjá smærri fyrirtækjum á Íslandi. Þúsundir fyrirtækja um land allt nota TOK daglega til að halda utan um bókhaldið sitt.
TOK launakerfið
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að byrja að nota TOK launakerfið.
Á námskeiðinu verður m.a. farið í:
• Stofnun launþega
• greiðslutegundir
• fasta launaseðla
• notkun launadagbóka
• ferli launaútreikninga, o.fl.
Þátttakendur fá að námskeiðinu loknu minnislykilmeð námskeiðsgögnum sínum.
TOK fjárhagsbókhald
Markmið námskeiðsins er að kenna notkun á TOK fjárhagsbókhaldi og viðskiptamannabókhaldi.
Á námskeiðinu er m.a. farið í:
• Uppsetningu
• flokkun og skráningu bókhaldslykla
• uppsetningu fyrir virðisaukaskatt og virðisaukaskattsvinnslur
• stofnun viðskiptamanna og tengingu þeirra við fjárhagsbókhald
• ýmsar uppflettingar, útprentanir o.fl.
Þátttakendur fá að námskeiðinu loknu minnislykil með námskeiðsgögnum sínum.