Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tónlistin frá ýmsum hliðum - Heimur harmonikurnar - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir og Ásgeir S. Sigurðsson.
Verð kr: 2.500 -
Staður: Edinborgarhúsið á Ísafirði.
Námskeið hefst: 01/03/2012
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Haldið fimmtudaginn 1. mars kl. kl. 20:00 - 22:00. Eldri borgarar og námsmenn fá afslátt af gjaldi.

Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð stuttra alþýðlegra námskeiða um tónlist veturinn 2011-2012. Námskeiðin verða haldin á fimmtudagskvöldum í Edinborgarhúsinu kl. 20:00 - 22:00.

Námskeiðin verða óháð hvert öðru og koma að tónlistinni frá ýmsum hliðum. Farið verður í mismunandi tónlistarstefnur, tengsl þeirra og uppruna, hvernig tónlist er samin, kynningu á hljóðfærum, sögu þeirra og þróun og hvernig hljóðfærin eru notuð til að túlka náttúruna og tilfinningar. Námskeiðin verða öllum opin, en þó einkum miðuð við fólk sem hefur áhuga á tónlist en ekki hlotið mikla tónlistarlega menntun.

Að þessu sinni munu Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Ásgeir S. Sigurðsson kynna fólk hinn heillandi heim harmonikunnar. Rakin verður saga harmonikunar og uppruni, fjallað um hvernig hún er samansett og hvernig hún virkar. Fjallað verður um hlutverk harmonikunar fyrr og nú og hvernig tónlist var leikin á hana á mismunandi tímum. Inn á milli verða leikin ýmis tóndæmi.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is