Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tónlistin frá ýmsum hliðum - Ó, þessar óperur - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Júlíus Karl Einarsson.
Verð kr: 2.500 -
Staður: Edinborgarhúsið á Ísafirði.
Námskeið hefst: 10/11/2011 - Umsóknarfrestur til: 10/11/2011
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Haldið fimmtudaginn 10. nóvember kl. kl. 20:00 - 22:00. Eldri borgarar og námsmenn fá afslátt af gjaldi.

Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð stuttra alþýðlegra námskeiða um tónlist veturinn 2011-2012. Námskeiðin verða haldin á fimmtudagskvöldum í Edinborgarhúsinu kl. 20:00 - 22:00.
Námskeiðin verða óháð hvert öðru og koma að tónlistinni frá ýmsum hliðum. Farið verður í mismunandi tónlistarstefnur, tengsl þeirra og uppruna, hvernig tónlist er samin, kynningu á hljóðfærum, sögu þeirra og þróun og hvernig hljóðfærin eru notuð til að túlka náttúruna og tilfinningar. Námskeiðin verða öllum opin, en þó einkum miðuð við fólk sem hefur áhuga á tónlist en ekki hlotið mikla tónlistarlega menntun.

Að þessu sinni eru óperur til umfjöllunar. Farið verður yfir það hvernig óperan varð til sem listform og hvernig hún hefur dafnað og þróast í gegnum aldirnar. Mismunandi leiðir kynntar til að nálgast óperur og hafa gaman af þeim. Stutt kynning á raddtegundum söngvara og hljómsveitaskipan með mynd- og tóndæmum.

Kynnir er Júlíus Karl Einarsson, baritón söngvari. Júlíus lærði við Tónlistarháskólann í Vínarborg og er í stjórn Vinafélags Íslensku óperunnar.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is