Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tónlistin frá ýmsum hliðum - Sönglögin okkar - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Guðrún Jónsdóttir og Margrét Gunnarsdóttir.
Verð kr: 2.500 -
Staður: Edinborgarhúsið á Ísafirði.
Námskeið hefst: 13/10/2011 - Umsóknarfrestur til: 12/10/2011
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Haldið fimmtudaginn 13. október kl. kl. 20:00 - 22:00. Eldri borgarar og námsmenn fá afslátt af gjaldi.

Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð stuttra alþýðlegra námskeiða um tónlist veturinn 2011-2012. Námskeiðin verða haldin á fimmtudagskvöldum í Edinborgarhúsinu kl. 20:00 - 22:00.
Námskeiðin verða óháð hvert öðru og koma að tónlistinni frá ýmsum hliðum. Farið verður í mismunandi tónlistarstefnur, tengsl þeirra og uppruna, hvernig tónlist er samin, kynningu á hljóðfærum, sögu þeirra og þróun og hvernig hljóðfærin eru notuð til að túlka náttúruna og tilfinningar. Námskeiðin verða öllum opin, en þó einkum miðuð við fólk sem hefur áhuga á tónlist en ekki hlotið mikla tónlistarlega menntun.

Fyrsta námskeiðið er haldið fimmtudaginn 13. október en þá munu Guðrún Jónsdóttir söngkona og Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari fjalla um íslensk sönglög.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is