Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Ullarþæfing

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Sigríður Magnúsdóttir og Þorbjörg Sigþórsdóttir
Verð kr: 12.700 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 04/10/2010 - Umsóknarfrestur til: 04/10/2010
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Kennt mánudaginn 4. og þriðjudaginn 5. október kl. 17:00 – 21:00. Efniskostnaður er ekki innifalinn í verði.

Þæfing á ull er meðal elstu textílhandverka heims. Á þessu námskeiði verður kynnt áströlsk aðferð við þæfingu, svokallaður núnóflóki eða núnóþæfing, þar sem silki, grisju og öðrum efnum er blandað saman við ullina svo úr verður þunnur og léttur en jafnframt sterkur og fallegur flóki. Núnóflóki er áhugaverð aðferð við þæfingu og með henni getur maður bæði gert metravöru sem hægt er að sauma úr á venjulegan hátt, eða þæft í kringum snið og búið til föt án þess að sauma. 

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is