Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Úr neista í nýja bók - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Anna Heiða Pálsdóttir, rithöfundur og doktor í bókmenntafræði
Verð kr: 22.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 28/04/2011 - Umsóknarfrestur til: 19/04/2011
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Fim. 28. apr. - 26. maí 2011

Er draumur þinn að skrifa smásögur eða kannski heila skáldsögu? Ert þú jafnvel með hugmynd að sögu í kollinum? Á þessu vinsæla námskeiði, sem nú býðst í fyrsta skipti í fjarnámi, verður farið yfir ýmis atriði við ritun skáldsagna, allt frá hugmyndavinnu til lokafrágangs. Námskeiðið er ætlað jafnt byrjendum sem og þeim sem lengra eru komnir í skrifum.
Námskeiðið byggist upp á fimm fyrirlestrum sem þátttakendur geta hlustað á í nettengdri tölvu þegar þeim hentar.
Fjallað er um ritferlið og hvaða kostir prýða góð skáldverk. Leiðbeiningar eru gefnar um hagnýta undirbúningsvinnu, hugmyndaöflun, val sögusviðs, persónusköpun, samtöl og sögufléttu. Einnig er fjallað um smásagnaformið sem slíkt.
Nemendur vinna verklegar æfingar í ritun texta sem þeir setja inn á sameiginlegt vefsvæði fyrir námskeiðið. Fjallað um verk nemenda í rithring (spjallþræðir) þar sem uppbyggjandi gagnrýni er höfð að leiðarljósi. Sýnishorn úr völdum bókum eru höfð til hliðsjónar og ritspírurnar fá sent kennsluhefti með handhægum upplýsingum og æfingum til framtíðanota við ritstörfin.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á fyrri ritunarnámskeiðum Önnu Heiðu:
• ”Frábært námskeið. Hlakkaði til hvers tíma.”
• ”Vandað, faglegt og metnaðarfullt námskeið! Búið að vera hrikalega skemmtilegt og lærdómsríkt og fróðlegt! ”
• ”Anna Heiða hrífur, heillar, hefur frásagnarhæfileika svo um munar, þægilega nærveru og þann einstaka hæfileika að láta öllum líða vel og veita öllum athygli.”

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is