Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Útikennsluaðferðir- Endurmenntunarnámskeið fyrir kennara

Flokkur námskeiðs: Endurmenntun kennara
Kennari: Margrét Eðvarðsdóttir og Ása Erliingsdóttir
Staður: Grunnskólinn Tálknafirði
Námskeið hefst: 18/08/2010 - Umsóknarfrestur til: 18/08/2010
Fjöldi kennslustunda: 16

Námskeið í aðferðum Joseph Cornell til að auðga lífið og gefa kennslunni dýpt

Joseph Cornell hefur í áratugi notað leiki og gleðina til að koma þekkingu áleiðis til nemenda. Megintilgangur leikjanna er að ýta undir uppgötvun einstaklingsins og nota til þess öll skynfærin

Kennsluaðferðirnar er hægt að nota hvar og hvenær sem er og hægt er að tengja þær hvaða námsefni sem er. Markmið námskeiðsins er að koma til móts við þarfirþátttakenda og styrkja þá í að taka útiveru inn í hvaða starf sem er, innan og utan grunnskólanna.

Margrét Eðvarðsdóttir og Ása Erlingsdóttir grunnskólakennarar og garðyrkjufræðingar eru leiðbeinendur á námskeiðinu en þær hafa báðar sótt námskeið hjá Joseph Cornell og innleitt aðferðir hans í sínu starfi.

Um er að ræða heilsdagsnámskeið sem haldið verður þann 18. ágúst nk. Kennsla fer fram í skógræktinni í Tálknafirði.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is