Kennari: Friðgeir Guðmundsson
Verð kr: 24.000 - Staðfestingargjald kr: 12.000
Staður: Þróunarsetrið á Hólmavík, neðsta hæð
Námskeið hefst: 29/10/2011 - Umsóknarfrestur til: 25/10/2011
Fjöldi kennslustunda: 15
Ath: Lágmarksfjöldi er átta þátttakendur.
Námskeið á vegum Handverkshússin í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Grunnámskeið í tréútskurði. Tréskurðarlistin er kynnt og farið stuttlega yfir sögu hennar og stefnu. Farið er yfir val á skurðarjárnum og öðrum þeim verkfærum sem nauðsynlegt er að hafa við höndina þegar skurðvinna hefst. Starfsaðstaða skurðarmanns, lýsing og hvernig á að beita skurðarjárnum, meðhöndlun þeirra, geymsla og brýnsla. Að minnsta kosti eitt verk verður unnið á námskeiðinu sem þjálfar vel huga og hönd. Þeir sem eru vanir eða hafa eitthvað fengist við útskurð fá flóknari verkefni. Skráning hjá Handverkshúsinu í síma 555 1212 eða á netfanginu namskeid@handverkshusid.is í síðasta lagi 25. október.