|
||||
|
|
Á námskeiðinu mun Magnús Jónsson taka fyrir tvær Íslendingasögur sem fjalla m.a. um ákveðið deilumál frá ólíkum sjónarhornum.
Vatnsdæla er hrein ættarsaga, hún rekur ævintýralega sögu ættföðurins og landnámsmannsins, Ingimundar gamla. Hann er knúinn til Íslands af forlögunum, þótt hann hafi ákveðið að fara aldrei “í eyðibyggðir þær”. Hinn “göfugi heiðingi” reisir hof sem hann kennir landnám sitt við, Hof í Vatnsdal. Sagan rekur síðan feril Hofverja, en síðasti ættliðurinn er gæfumaðurinn Þorkell krafla. Vatnsdæla er sett saman úr eftirminnilegum og skemmtilegum þáttum sem móta sterkan, litríkan þráð.
Finnboga saga segir í upphafi frá ævintýralegri æsku Urðarkattar, drengs sem var borinn út og alinn upp í argasta koti. Seinna er hann leiddur til foreldra sinna og arfs. Hann fær nafnið Finnbogi, verður gæfumaður og framast í Noregi. Finnbogi sest að á Borg í Víðidal en að slíkum ágætismanni sækir öfund og óvild. Af því skapast miklar deilur, einkum við Hofverja, Ingimundarsyni gamla í Vatnsdal.
Báðar sögurnar segja frá þessum deilum og þeim ber saman um flest meginatriði. En þær greinir hins vegar á um margt enda er hetjunum borin sagan á mismunandi vegu eftir því hvort sjónarhornið er frá Vatnsdal eða Víðidal. Samanburður á sögunum er því einkar áhugaverður, til dæmis hvort og hvernig munnlegar frásagnir höfðu áhrif á mótun Íslendingasagna.
Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.