Kennari: Magnús Skúlason arkitekt, Jón Norsteien arkitekt og Einar Skúli Hjartarson húsasmíðameistari.
Verð kr: 40.000 kr. -
Staður: Skor þekkingarsetur á Patreksfirði
Námskeið hefst: 16/04/2010 - Umsóknarfrestur til: 16/04/2010
Fjöldi kennslustunda: 15
Námskeiðinu um viðhald og endurbætur á eldri timbur- og steinhúsum verður haldið á Patreksfirði dagana 16 og 17 apríl nk. ef næg þátttaka fæst. Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöður og burðarvirki eldri timburhúsa. Farið er yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul hús sem hefur verið gert við og hús sem þarfnast viðgerða. Einnig er farið yfir undirbúning viðgerða, sögu og þróun húsbygginga á Íslandi.
Námskeiðið er ætlað húsasmiðum, en þó öllum opið.
Námskeiðið verður haldið af Húsfriðunarnefnd ríkisins (http://www.hfrn.is/) og Fræðslumiðstöð Vestfjarða.