Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fræðslumiðstöð Vestfjarða - miðstöð símenntunar á Vestfjörðum

Fræðslumiðstöð Vestfjarða
kt. 511199-2049
Suðurgata 12, 400 Ísafjörður
Sími: 456 5025 - Fax: 456 5066

Fræðslumiðstöð Vestfjarða var formlega stofnuð á degi símenntunar 28. ágúst 1999. Markmið með stofnun hennar er að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi bæði í formi styttri almennra námskeiða, endurmenntunarnámskeiða og starfstengdra námskeiða, en þó ekki hvað síst að auka möguleika á námi á háskólastigi m.a. með því að nýta fjarfundartæknina sem þá var að ryðja sér til rúms. Átti það jafnt við grunnmenntun á afmörkuðum sviðum (starfsmenntun/einstök námskeið), framhaldsmenntun, endurmenntunarnámskeiðum og styttri fagtengd námskeið af ýmsu tagi.

Fræðslumiðstöðin er félagi í Kvasir sem eru samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og í Leikn sem eru samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er sjálfseignarstofnun, sem starfar á grundvelli laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1998.  Fulltrúaráðið er æðsta stjórn miðstöðvarinnar.  Á milli funda fulltrúaráðsins fer stjórn með æðsta vald í málefnum miðstöðvarinnar.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is