Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Gæðamál

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er viðurkenndur fræðsluaðili samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og starfar samkvæmt EQM gæðakerfinu, e. European Quality Mark. EQM byggist á sjálfsmati sem er yfirfarið ef EQM viðurkenndum úttektaraðila sem kemur einnig með ábendingar um gæðamál og umbætur meðan á úttektarferlinu stendur.

EQM er hannað til að mæta síauknum kröfum um gagnsemi náms og sameiginleg gæðaviðmið fyrir fræðsluaðila utan hins formlega skólakerfis. EQM tekur mið af;

  • Gæðum þjónustunnar sem fræðsluaðili veitir.
  • Innri gæðastjórnun og verklagsreglum fræðsluaðila.
  • Hvernig núverandi starfshættir samræmast viðurkenndum gæðaviðmiðum.

Gæðaviðmið eru sett upp í tveggja þrepa kerfi. Fræðsluaðilar, fyrirtæki og starfsgreinafélög sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu geta sótt um gæðavottun EQM vegna fræðslu. Auk þess er boðið upp á gæðavottun sem nefnist EQM+, til að uppfylla þarfir fræðsluaðila sem hafa fjölbreytta fræðslustarfsemi, þar sem sett eru viðmið fyrir fræðslu, raunfærnimat og náms- og starfsráðgjöf.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða hlaut EQM+ gæðavottun í mars 2020 og gildir hún í þrjú ár.

Samkvæmt EQM+ vinnur starfsfólk samkvæmt umbótaáætlun, sem er hluti af gæðastarfinu og uppfærð reglulega. Umbótaáætlunina má nálgast hér.

 

Eldri færslur