Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Fræðandi heimsókn til Chemnitz

Í júní á þessu ári hélt starfsfólk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða til Þýskalands þar sem Volkshochschule í Chemnitz var heimsóttur. Við dvöldum þar í nokkra daga í starfsspeglun þar sem við fengum tækifæri til að kynnast starfsemi og uppbyggingu skólans, deila reynslu og sækja okkur nýjar hugmyndir sem geta nýst í starfi okkar hjá Fræðslumiðstöðinni. 

Við tókum þátt í ýmsum námskeiðum og kynntum okkur fjölbreytt námsframboð Volkshochschule. Þar eru meðal annars tungumálanámskeið, matreiðslunámskeið og íþrótta- og hreyfitímar. Það var áhugavert að sjá hversu fjölbreytt fræðslustarf getur verið innan fullorðinsfræðslunnar. 

Eitt af því sem vakti sérstaka athygli okkar var samstarf skólans við söfn og aðrar stofnanir í samfélaginu. Einnig var áhugavert að kynna sér þær leiðir sem skólinn fer til að stuðla að inngildingu nýrra íbúa og efla menningarmiðlun. Þessi nálgun gaf okkur nýja sýn á hvernig hægt er að tengja saman nám, menningu og samfélag. 

Á meðan á dvölinni stóð fengum við einnig tækifæri til að kynnast sögu og menningu Chemnitz og Austur-Þýskalands. Við fræddumst meðal annars um sögu svæðisins frá þeim tíma þegar það tilheyrði fyrrum Austur-Þýskalandi (DDR). 

Heimsóknin var bæði fræðandi og innblástursrík. Við fengum tækifæri til að deila hugmyndum og reynslu og kynnast nýjum leiðum í fullorðinsfræðslu. Ferðin var því dýrmæt bæði frá faglegu og menningarlegu sjónarhorni og við komum heim þakklátar og með margar nýjar hugmyndir.  

Ferðin var styrkt af Erasmus+. 

Deila