Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Aukin starfsánægja og afköst með Claude - Ísafjörður

26. október 2026

Hvernig viltu verja tímanum þínum? Láttu Claude gera leiðinlegu verkefnin svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Við skoðum hvernig þú hættir að nota gervigreind sem leitarvél og byrjar að láta hana vinna fyrir þig.

Á námskeiðinu setjum við Claude upp þannig að það verði auðveldara að vinna með tólið. Þú færð reglur og stillingar sem hafa reynst leiðbeinanda vel, setur þær í minni Claude og byggir þína fyrstu færni (e. skill).

Leiðbeinandi vinnur eftir aðferðafræði sem kallast samhengisverkfræði (e. context engineering).

Á námskeiðinu munt þú læra:

  • Hvernig gervigreind virkar
  • Hvernig er best að nota Claude
  • Hvernig við látum Claude vinna fyrir okkur með Cowork
  • Hvernig á að byggja samhengi með minni og Projects
  • Hvernig á að byggja færni
  • Hvað context engineering er
  • Stór partur af námskeiðinu eru verkefni

Fyrir hverja?
Þetta námskeið er fyrir verkefnastjóra, stjórnendur, markaðsfólk, frumkvöðla og alla þá sem sinna fjölbreyttum störfum og vilja læra að láta gervigreind vinna fyrir sig. Hvort sem þú hefur aldrei opnað Claude eða notar hann daglega og vilt kynnast Cowork betur.

Um kennarann
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Þórdís Jóna Ingigerðardóttir, tölvunarfræðingur, frumkvöðull og stofnandi Revera. Hún hefur starfað í hugbúnaðargeiranum í áratug og leitar stöðugt leiða til að auka skilvirkni. Á námskeiðinu kennir hún það sem hún hefur lært af því að vinna með gervigreind.

 Athugið að þátttakendur þurfa að koma með tölvu og vera með áskrift að Claude.

Tími: Mánudagur 26. og þriðjudagur 27. október kl. 9-12 (2 skipti).
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Verð: 79.900 kr.

Væntanlegir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning