Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Borðum betur, sóum minna - fjarkennt

2. nóvember 2026

Á þessu tveggja hluta netnámskeiði fá þátttakendur hagnýta fræðslu og verkfæri til að taka meðvitaðri ákvarðanir um mat, draga úr matarsóun og nýta hráefni betur í daglegu lífi.

Fyrri lota: Matur, heilsa og umhverfi

Fjallað um hvernig val okkar á mat hefur áhrif á bæði heilsu og umhverfi. Farið verður yfir:

  • Umhverfisáhrif mismunandi matvæla.
  • Tengsl matarvenja og sjálfbærni.
  • Áhrif framleiðslu og flutninga matvæla.
  • Hvernig hægt er að velja mat sem styður bæði við heilsu og umhverfi.
  • Leiðir til að draga úr matarsóun.

Í seinni hluta lotunnar vinna þátttakendur saman í litlum hópum og skoða raunhæf dæmi út frá efninu sem farið hefur verið yfir.

Seinni lota: Meiri nýting og minni sóun

Í síðari lotunni er lögð áhersla á hagnýtar leiðir til að nýta mat betur í daglegu lífi.

Fjallað verður um:

  • Skipulag vikunnar og matseðlagerð.
  • Snjöll innkaup sem draga úr sóun.
  • Fullnýtingu hráefna.
  • Nýtingu afganga og hráefna sem oft gleymast.
  • Hvernig frystirinn getur hjálpað til við að minnka matarsóun.
  • Einfaldar leiðir til að fylgjast með og mæla lífrænan úrgang á heimilinu.

Þátttakendur vinna síðan verkefni í litlum hópum þar sem þeir þróa hugmyndir og lausnir út frá mismunandi þemum. Í lok námskeiðsins kynna hóparnir niðurstöður sínar og deila reynslu og hugmyndum sín á milli.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiðinu loknu geta þátttakendur:

  • Tekið upplýstari ákvarðanir um matarval.
  • Dregið úr matarsóun á heimilinu.
  • Skipulagt innkaup og máltíðir á hagkvæmari hátt.
  • Nýtt hráefni betur og aukið fullnýtingu.
  • Skilið betur tengsl matarvenja, heilsu og umhverfis.

Um kennarann

Dóra Svavarsdóttir er matreiðslumeistari, kennari og öflugur talsmaður sjálfbærra matvælakerfa. Hún hefur áralanga reynslu af kennslu, þróun námskeiða og fræðslu um matarmenningu, matargerð, næringu og sjálfbærni. Í starfi sínu hefur hún lagt sérstaka áherslu á að efla virðingu fyrir hráefnum, draga úr matarsóun og styðja við aukna nýtingu staðbundinna og árstíðabundinna afurða.

Dóra tengir saman fræðilega þekkingu og hagnýtar lausnir sem þátttakendur geta nýtt strax í eigin eldhúsi og daglegu lífi. Hún er formaður Slow Food Á Íslandi og brennur fyrir því að stuðla að matarvenjum sem eru góðar fyrir bæði fólk og umhverfi.

Tími: Kennt mánudagana 2. og 9. nóvember kl. 17-20.
Lengd: 6 klukkustundir.
Staður: Fjarkennt.
Verð: 24.900 kr.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning