Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Canva - fyrstu skefin - Ísafjörður

20. október 2026

Langar þig að læra að búa til flott og faglegt efni á einfaldan hátt? Á þessu tveggja kvölda námskeiði kynnast þátttakendur Canva og læra grunnatriðin í að búa til og aðlaga eigið efni. Námskeiðið er ætlað byrjendum og ekki er gert ráð fyrir fyrri reynslu af Canva eða öðrum hönnunarforritum. 

Canva er notendavænt og fjölhæft hönnunarverkfæri sem hentar jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum. Með Canva er meðal annars hægt að útbúa glærukynningar, efni fyrir samfélagsmiðla, myndbönd, bæklinga, logo, veggspjöld, skjöl og einfaldar vefsíður.

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur helstu möguleikum Canva og hvernig hægt er að nýta fjölbreytt úrval tilbúinna sniðmála og aðlaga að eigin þörfum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist grunnfærni í Canva og geti að námskeiði loknu haldið áfram að prófa sig áfram og útbúa eigið efni.

Canva getur meðal annars nýst fólki sem vinnur við kynningar- og markaðsmál, samfélagsmiðla eða kennslu, eigendum og starfsfólki fyrirtækja og félagasamtaka, sjálfstætt starfandi fólki eða einfaldlega öllum sem vilja geta útbúið fallegt og vandað efni fyrir vinnu, félagsstarf eða eigin verkefni.

Námskeiðið er kennt á tveimur kvöldum.

Kvöld 1: grunnurinn í Canva

  • Kynning
  • Sniðmát og hönnun
  • Texti, myndir, grafík
  • Verkefni

Kvöld 2: grunnur 2

  • Litir, letur, Brand kit og samræmi í vali
  • Textabreytingar, bakgrunnseyðing, AI myndir, viðeigandi breytingar á myndefni
  • Myndbönd og samfélagsmiðlar
  • Verkefni

Athugi að þátttakendur þurfa að mæta með eigin tölvu.

Kennari: Vala Dögg Petrudóttir.
Tími:
 Kennt þriðjudaginn 27. og fimmtudaginn 29. október kl. 19:30-22.  
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Verð: 24.900 kr.

Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!

 

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning