Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Ferðast fyrir lítið - fjarkennt

26. október 2026

Viltu ferðast um heiminn fyrir lítíð? Ertu að skipuleggja drauma sumarfríið? Eða kannski Tene um jólin?

Námskeið fyrir alla þá sem vilja ferðast meira fyrir minna, hvort sem það er til Akureyrar eða Timbúktú.

Á námskeiðinu verður m.a. fjallað hvenær á að bóka til að fá flug á sem bestu verði, hvaða vafra er best að nota, kaupa flugáskriftir og nota punkta eða stéttafélagsávísanir. Hvernig á að pakka fyrir ferðina, hvar er best að bóka gistingu á hagstæðu verði, vilt þú ferðast frítt með því að passa íbúðir og/eða gæludýr fólks erlendis eða vera með íbúðarskipti.

Markmiðið er að veita þátttakendum verkfæri til að skipuleggja hagkvæmar og skemmtilegar ferðir á öruggan hátt.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Unnur Ólafsdóttir. Unnur er verkefnastjóri, leikkona og kennari og margreyndur ferðalangur sem hefur flakkað víða um heim og búið í fimm löndum. Hún hefur gist á moldargólfum í Kenýa og á Indlandi og dvalið á fimm stjörnu hótelum á Maldíveyjum. Oft hefur hún ferðast með lítið í bankabókinni en alltaf skemmt sér konunglega.

Tími: Kennt mánudaginn 26. okbóber kl. 17-19.   
Staður: Fjarkennt.
Verð: 19.900 kr.

Félagsfólk Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk félagsfólks í stéttarfélögum sem eiga aðild að Iðunni, getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Aðrir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning