Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Gervigreind í símanum – ChatGPT og fleiri möguleikar - Ísafjörður

2. desember 2026

Stutt og hagnýtt námskeið fyrir eldra fólk og aðra sem vilja fá kynningu á ChatGPT og öðrum möguleikum gervigreindar í snjallsímanum.

Farið verður yfir hvernig setja má upp ChatGPT og skrá sig inn, hvernig hægt er að spyrja gervigreind góðra spurninga og nota hana meðal annars til að skrifa texta, fá útskýringar, leita upplýsinga, þýða og einfalda texta og fá hugmyndir og aðstoð við ýmis verkefni.

Einnig verður fjallað um hvað þarf að hafa í huga við notkun gervigreindar, svo sem persónuupplýsingar, öryggi og að upplýsingar sem hún gefur geta verið rangar.

Engin sérstök tæknikunnátta er nauðsynleg en þátttakendur þurfa að koma með símann sinn.

Leiðbeinandi: Ármann Haraldsson.
Tími:  Miðvikudagur 2. desember kl. 15:00-17:00.  
Lengd: 2 klst.  
Staður:  Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði. 
Verð: 12.000 kr.

Félagsfólk Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk félagsfólks í stéttarfélögum sem eiga aðild að Iðunni, getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Aðrir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning