HACCP 3 – Gæði og öryggi alla leið
18. nóvember 2026
Áhersla á skoðunarhandbók MAST.
Námskeið fyrir alla þá sem vinna við innleiðingu og rekstur á HACCP kerfum t.d. meðlimi HACCP hópa, þá sem vinna við mikilvæga stýristaði, flokkstjóra, verkstjóra, tæknimenn o.s.frv.
Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.
Efni námskeiðs:
- Öryggi í gegnum alla “fæðukeðjuna”: Frumframleiðendur, matvælaframleiðendur, dreifingarfyrirtæki, smásalar, tækjaframleiðendur, framleiðendur umbúða og hreinsiefna.
- Staðlar – stutt kynning ( t.d ISO staðlar, IFS staðall, BRC staðall). Frábær hjálpartæki fyrir matvælafyrirtæki sem vilja vera í fremstu röð hvað varðar gæði og öryggi. Markmið, framtíðarsýn og skýr gæðastefna skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki í fararbroddi.
- Fyrirbyggjandi aðgerðir – GMP ( góðir framleiðsluhættir) þurfa að vera mjög virkar áður en HACCP kerfi er komið á t.d virk hreinlætisáætlun, teikningar yfir flæði vöru og starfsfólks, kröfur til birgja, þjálfun starfsfólks, fyrirbyggjandi viðhald og hitastigsstjórnun.
- HACCP gæðakerfið. Hvað er HACCP ? Hvernig komum við því á og hvernig innleiðum við það? Hvernig getur HACCP kerfið hjálpað til að auka öryggi matvæla ? Hættur, hættugreining, mikilvægir stýristaðir, eftirlit, vikmörk, úrbætur.
- Yfirlit yfir helstu hættur í matvælum s.s sýkla, sníkjudýr, histamín, þungmálmar, díoxín, ofnæmisvaldandi efni, aðskotahluti o.fl.
- Kvartanir – Hvernig vinnum við úr kvörtunum ? Rekjanleiki – eitt skref áfram og eitt skref aftur– hvað þýðir það í framkvæmd. Innköllun – prufuinnköllun.
- Sannprófun á gæðakerfum – dagleg, vikuleg og árleg. Til að tryggja að ávallt sé verið að vinna eftir HACCP gæðakerfinu.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Sýni.
Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá Sýni.
Tími: Mið. 18, fim. 19. og fös. 20. nóvember kl. 8-14.
Lengd: 18 klst (3 skipti).
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Verð: 140.000 kr.
Minnum væntanlega þátttakendur á að kanna rétt til endurgreiðslu námskeiðsgjalda hjá sínu stéttarfélagi.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

