Hagnýt íslenska í lífi og samfélagi
14. október 2026
Hagnýt íslenska í lífi og samfélagi er ný námsleið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða þar sem íslenskunám, samfélagsfræðsla, upplýsingatækni og samskiptafærni fléttast saman.
Í náminu er sérstök áhersla lögð á íslenskt mál, einkum talþjálfun, ásamt fræðslu um íslenska menningu og samfélag. Markmiðið er að efla færni og sjálfstraust þátttakenda og auðvelda þeim að nota íslensku í daglegu lífi, starfi og samskiptum.
Kennslan fer fram á íslensku og samsvarar færnistigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Námið er ætlað fólki sem hefur nokkuð góða færni í íslensku en vill efla tungumálakunnáttu sína, öðlast aukið öryggi í samskiptum og styrkja færni sína til þátttöku í íslensku samfélagi.
Námið er samtals 78 kennslustundir og skiptist í fjóra námsþætti:
- Íslenska – 30 kennslustundir: Þjálfun í töluðu og rituðu máli, með sérstakri áherslu á talþjálfun, orðaforða og samskipti í daglegu lífi, starfi og samfélagi.
- Menning og samfélag – 24 kennslustundir: Fræðsla um íslenska menningu, sögu og samfélag, með sérstakri áherslu á Vestfirði. Einnig er fjallað um réttindi, skyldur og opinbera þjónustu.
- Upplýsingatækni – 12 kennslustundir: Þjálfun í að nýta tölvur, snjallsíma og ýmis forrit til að efla íslenskukunnáttu. Þátttakendur læra meðal annars að nota þýðingar- og málfræðiforrit, leita upplýsinga á íslenskum vefsíðum og vinna með íslenskt efni.
- Sjálfsefling og samskipti – 12 kennslustundir: Áhersla á að efla sjálfstraust, samskiptafærni og samstarfshæfni og læra að takast á við áskoranir í daglegu lífi og starfi.
Markmið námsins er að þátttakendur öðlist aukna færni, þekkingu og sjálfstraust til að vera virkari og sjálfstæðari í íslensku samfélagi. Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Kennarar: Ólöf Bergmannsdóttir o.fl.
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:30-19:30. Hefst 14. október og lýkur í janúar 2027.
Lengd: 78 klukkustundir.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafjörður.
Verð: 38.400 kr.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

