Íslenska f. Taílendinga - Ísafjörður
25. október 2026
Námskeið fyrir fólk af taílenskum uppruna. Lögð er áhersla á framburð, orðaforða, málfræði, ritun og samtöl. Einnig er komið inn á menningu, samfélag og fleira. Námið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir og er námsefni aðlagað þátttakendum eftir getu.
Kennari: Sigurborg Þorkelsdóttir.
Tími: Hefst 25. október. Kennt á sunnudögum kl. 11-14.
Lengd: 20 klukkustundir.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Verð: 29.500 kr.
Almennt gildir að til þess að ljúka námskeiði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða með viðurkenningu þarf að lágmarki 75% mætingu. Athugið að viðmið Útlendingastofnunar fyrir þau sem ætla að sækja um ótímabundið dvalarleyfi er hins vegar að lágmarki 85% tímasókn.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

