Lífeyrismál á öllum aldri - fjarkennt
5. nóvember 2026
Gagnleg fræðsla á mannamáli um uppbyggingu og töku lífeyris á Íslandi. Lögð er áhersla að þátttakendur geti valið á milli þeirra fjölmörgu valkosta sem bjóðast, svo gera megi sem mest úr hverri krónu.
Meðal þess sem rætt verður um er:
Hvernig vel ég lífeyrissjóð?
- Hvernig sé ég í hvað stefnir að óbreyttu?
- Á ég að skrá mig í tilgreinda séreign?
- Hvernig ávaxta ég og sæki viðbótarlífeyrissparnað?
- Hvaða hlutverki mun Tryggingastofnun gegna?
- Hvernig geta skattar haft áhrif á ákvarðanir um uppbyggingu og úttekt lífeyris?
- Hvernig byggi ég upp minn eigin lífeyrissjóð?
- Hvernig tryggi ég fjárhagslegt öryggi fjölskyldu minnar?
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Björn Berg Gunnarsson, sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari. Nánar upplýsingar um Björn má nálgast á www.bjornberg.is
Tími: Fimmtudagur 5. nóvember kl. 17-19.
Staður: Fjarkennt
Verð: 19.900 kr.
Félagsfólk Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk félagsfólks í stéttarfélögum sem eiga aðild að Iðunni, getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Aðrir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

